Háskólalest Háskóla Íslands heimsótti Uppsveitir og Flóa dagana 19.–20. nóvember. Bæði nemendur og kennarar sátu námskeið og fengu víðtæka fræðslu frá vísindafólki Háskólans sem kom færandi hendi með fjölbreyttar kennarasmiðjur og námskeið af ýmsum sviðum skólans. 

Alls komu nemendur úr 8.–10. bekk sex grunnskóla saman í Flóaskóla til að taka þátt í námskeiðunum, en skólarnir voru Bláskógaskóli, Reykholtsskóli, Flúðaskóla, Kerhólsskóla, Flóaskóla og Þjórsárskóla.  Áhuginn leyndi sér ekki og nemendur tóku virkan þátt þegar kafað var í fjölbreytt vísindin á lifandi og skemmtilegan hátt.

Nemendur fengu meðal annars að gera tilraunir í efnafræði, kynnast blaða- og fréttamennsku, prófa ýmislegt í íþrótta- og heilsufræði, taka þátt í verklegri sjúkraþjálfun og læra um eðlisfræði skopparabolta og pappírsbáta. Nemendur tóku einnig þátt í leiklistaræfingum, spiluðu tölvuleik um tölur, upplifðu ævintýri fuglanna ásamt því að kafa inn í heim gervigreindar og jákvæðrar sálfræði.   

Vísindafólk lestarinnar tók fagnandi á móti þessu kraftmikla unga fólki sem vakti athygli fyrir prúðmennsku og óbilandi forvitni og það er augljóst að framtíðin er björt með nemendum sem þora að spyrja, prófa og taka virkan þátt.

Jafnframt voru haldnar þrjár mjög fjölmennar kennarasmiðjur um gervigreind, hegðunarvanda og ofbeldi nemenda og verklegrar raunvísindakennslu. Nálægt 100 kennarar úr Uppsveitum og Flóa mættu til að efla sína fagþróun og fá nýjar hugmyndir inn í skólastarfið.  

Sveitarfélögin fimm á svæðinu buðu vísindafólki og skólastjórnendum í kvöldverð sem var kærkomið tækifæri til að efla tengsl, ræða hugmyndir og styrkja grunninn að áframhaldandi samvinnu milli Háskólans og landsbyggðarinnar.

Vísindaævintýrið heldur áfram laugardaginn 22. nóvember frá klukkan 13:00 til 16:00 þegar Opið Vísindahús verður í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi.  Þar býðst öllu samfélaginu, börnum, fullorðnum og eldri borgurum, að kynnast vísindum með gagnvirkum og skemmtilegum hætti. Gestir geta meðal annars upplifað spennandi efnafræðitilraunir með Sprengju-Kötu, tekið eigin fréttaviðtöl, skoðað tól og tæki sjúkraþjálfara, kafað inn í heim gervigreindar, kynnst japönskum myndtáknum, máli og origami. Þá geta gestir mælt gripstyrk sinn, spilað tölvuleik um tölur, fengið innsýn í eðlisfræði skopparabolta og pappírsbáta og kynnst ævintýrum fuglanna með fuglafræðingi við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi​.

Aðgangur er ókeypis og engin skráning nauðsynleg og öll eru hjartanlega velkomin.

Myndir frá ferð Háskólalestarinnar í Uppsveitum og Flóa má sjá hér og bætast fleiri myndir í albúmið við eftir Opna vísindahúsið.

Í myndaalbúminu má sjá gleðina, forvitnina og kraftinn sem einkenndi dagana og samveruna sem styrkir tengsl milli skóla, samfélags og háskóla.

Mynd Háskólalestin_Uppsveitir og Flói
Share