Sannkallað vísindaævintýri á Opnu vísindahúsi í Borg í Grímsnesi

Opið Vísindahús var haldið í Félagsheimilinu í Borg í Grímsnesi laugardaginn 22. nóvember. Hundruðir gesta á öllum aldri streymdu víða að af Suðurlandinu og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá. Gestir fylgdust til að mynda með spennandi efnafræðitilraunum Sprengju-Kötu og kynntust ævintýrum fuglanna með fuglafræðingi frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurlandi. Margir reyndu sig í því að taka eigin fréttaviðtöl eða settu sig í spor kvikmyndagerðarfólks. Gestir gátu prófað hvað líkaminn getur með sjúkraþjálfara, kafað inn í heim gervigreindar og skoðað japönsk myndtákn, mál og origami. Margir mældu gripstyrk sinn, reyndu sig í tölvuleik um tölur og sumir fengu að skjóta vatnseldflaugum langt í loft upp með eðlisfræðingi.

Stemningin var einstaklega góð og mikill áhugi gesta leyndi sér ekki. Þetta var sannkölluð vísindaveisla og ljóst að gestum fannst vísindin bæði skemmtileg og spennandi.

Við þökkum íbúum á Suðurlandi fyrir frábærar móttökur.

Myndir frá vísindaævintýri Háskólalestarinnar á Suðurlandi má sjá hér.   Í albúminu má sjá myndir frá kennarasmiðjum fyrir kennara og námskeiðum fyrir nemendur í 8.–10. bekk í Uppsveitum og Flóa, og að sjálfsögðu frá líflegu Opnu vísindahúsi fyrir allt samfélagið í Félagsheimilinu í Borg í Grímsnesi.

Share