Háskólalestin á Sauðárkróki

Opið vísindahús Háskólalestar Háskóla Íslands sem haldið var í Árskóla á Sauðárkróki laugardaginn 18. apríl var afar vel heppnað. Hátt í þúsund gestir lögðu leið sína á staðinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár þar sem vísindi voru kynnt á lifandi, aðgengilegan og skemmtilegan hátt fyrir fólki á öllum aldri.  

Einstök stemning skapaðist í húsinu þar sem forvitni og gleði réðu ríkjum. Dagskráin var eins fjölbreytt og hún var skemmtileg. Gestir gátu meðal annars spreytt sig í skurðlækningum með því að sauma í gervihúð, kynnst japanskri menningu og origami, og tekið þátt í því að skjóta vatnseldflaugum hátt til lofts. Þá vöktu hreyfiáskoranir sjúkraþjálfara og fallbyssu-skotkeppni mikla lukku, auk þess sem margir prófuðu sig áfram í blaða- og fréttamennsku.

Tækni og sköpun skipuðu stóran sess en þar gátu gestir kynnst vélmennum, forritun í Micro:bit og skapað með FabLab Sauðárkróki. Samstarfið við heimamenn og stofnanir í héraði gaf hátíðinni enn meiri lit, en Háskólinn á Hólum kynnti starfsemi sína á einstaklega skemmtilegan hátt og Byggðasafn Skagfirðinga bauð upp á forvitnilega innsýn í safnastarf og fornleifar þar sem fortíð, nútíð og framtíð mættust.

Háskólalestinni var einstaklega vel tekið í Skagafirði og viljum við færa skólastjórnendum, sveitarstjórn, samstarfsaðilum og íbúum öllum innilegar þakkir fyrir dýrmætan stuðning og samvinnu. Þessi frábæra þátttaka sýnir svo ekki verður um villst þann mikla áhuga sem ríkir á vísindum og sköpun í samfélaginu.

Vísindahúsið var hluti af dagskrá Sæluvikunnar og er ljóst að vísindagleðin markaði eftirminnilegt spor í hátíðarhöldin að þessu sinni. Háskólalest Háskóla Íslands kveður Skagafjörð með þakklæti í huga og hlakkar til áframhaldandi samstarfs og frekari landvinninga um land allt.

Myndir frá ferð Háskólalestarinnar í Skagafirði má sjá hér.

Share