Fjör og fræði í Háskólalestinni 2024

Háskólalestin landsþekkta var á Höfn í Hornafirði 3. maí og á Húsavík 22. maí. Lestin verður í Sandgerði 30. og 31. ágúst.  Í lestinni er fléttað saman dúndrandi fræðum og vísindafjöri.

Háskólalest HÍ er með kennslu í grunnskólum staðanna og kynningu á undrum vísindanna fyrir allt heimafólk.

Áhöfn lestarinnar býður upp á mjög fjölbreytt og spennandi námskeið og smiðjur af öllum fræðasviðum fyrir grunnskólanemendur og líka fyrir kennara. Í áhöfn lestarinnar er fræðafólk og framhaldsnemar við Háskóla Íslands sem öll hafa mikla reynslu af miðlun og kennslu. Einnig verður vísindafólk frá Rannsóknasetrum HÍ í lestinni.

Markmiðið með Háskólalestinni er að kynna vísindi á lifandi hátt og styðja við starf grunnskólanna samtímis því að efla tengsl HÍ við landsbyggðina.

Háskólalestin fékk Vísindamiðlunarverðlaun Rannís árið 2012.

Image

Undur vísindanna í opnu húsi

Háskólalestin býður öllum á opið vísindahús til að sjá afrakstur krakkanna úr lestinni auk þessa að gefa fólki færi á að kynnast vísindafólkinu betur og sjá undrin með eigin augum. 

Á opna húsinu er hægt að spjalla við fræðafólkið um allt milli himins og jarðar, eða því sem næst.

Það er alveg ókeypis á opna húsið og öll eru hjartanlega velkomin!

Image