Námskeið

Háskólalestin býður upp á afar fjölbreytt námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands og úr Háskóla unga fólksins. 

Hér fyrir neðan er listi yfir nokkur af þeim námskeiðum sem boðið hefur verið upp á í Háskólalestinni. Fræðimenn og framhaldsnemar við Háskólann hafa umsjón með flestum námskeiðunum. 

Í vor verður verður boðið upp á námskeiðin: Tækjaforritun, bókmenntir- og loftlagsbreytingar, stjörnufræði, blaða- og fréttamennska, sjúkraþjálfun, efnafræði og gervigreind, sem má einnig finna hér að neðan.