Hugmyndasaga

Í námskeiðinu eru hugmyndir sem breyttu heiminum skoðaðar til þess að koma auga á hvernig það sem okkur þykir sjálfsagt í dag var einu sinni aðeins hugmynd á borði eða í huga. Skoðað er hvernig hugmyndir um fegurð, samskipti, grín og mat, svo að dæmi séu tekin, verða að viðteknum hugmyndum sem þykja sem skrifaðar í stein þó svo að siðir og venjur annars staðar séu gerólíkar.

Sumt sem þykir skrýtið í dag þótti einu sinni sjálfsagt - eins og karlar á háum hælum. Sumt þykir sjálfsagt annars staðar á plánetunni sem þykir skrýtið hér, eins og vinir að leiðast úti á götu.

Fræði og hugmyndir allar sem við lærum í skólum, lesum í bókum, sjáum í sjónvarpinu eða á Internetinu breyta því hvernig við högum okkar daglega lífi, hverja við vingumst við og hvernig við tölum hvert við annað.

Námskeiðið byggist á samræðu nemenda um eigin líf, áhuga og dægurmenningu til þess að reyna að skoða hvaðan hugmyndirnar koma!

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is