Eðlisfræði

Í eðlisfræði í Háskóla unga fólksins eru meðal annars gerðar allskonar skemmtilegar tilraunir með ljós, þar sem fyrirbærin skautun, alspeglun, víxlun og bognun leika lykilhlutverk við að mynda skrautleg mynstur.

Meðal tilraunanna eru: Litaheimur límbandsins, mynstur UHU-límsins, ljósgreiður úr leisiprentara, mæling á hárþykkt og vatnsbunuljósleiðari. Þátttakendur fá tækifæri til að búa til eigin uppstillingar að sumum tilraununum.

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is