Biophilia tónvísindasmiðjur

Tónvísindasmiðjurnar eru einstök blanda af vísindum, tónlist og sköpun. Byggt er á smáforritum úr tónverki Bjarkar Guðmundsdóttur, Biophilia. Hér sameinast kraftar sjálfrar náttúrunnar, undraveröld tónfræðinnar og sköpunargleði nemenda. 

Kennslan fer meðal annars fram með lifandi vísindatilraunum, tóndæmum og spjaldtölvum. Nemendur prófa að skapa sína eigin tónlist og taka virkan þátt í smiðjunum.

 

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is