Háskólalestin heimsækir Sandgerði um helgina

Annar áfangastaður Háskólalestarinnar í maímánuði er Sandgerði. Lestin stöðvast þar í bæ dagana 12. og 13. maí þar sem boðið verður upp á bæði skemmtileg námskeið fyrir nemendur í elstu bekkjum grunnskólans og vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna.

Háskólalestin hóf yfirreið sína í maímánuði um síðustu helgi þegar hún heimsótti Vík í Mýrdal en þar var henni tekið einstaklega vel. Nú er komið að heimsókn í Sandgerði og munu nemendur í Grunnskólanum í Sandgerði sækja valin námskeið í Háskóla unga fólksins á vegum Háskólalestarinnar föstudaginn 12. maí. Í boði verða námskeið sem tengjast blaða- og fréttamennsku, eðlisfræði, efnafræði, japönsku, jarðfræði, leik að hljóði, leyndardómum miðaldahandrita, stjörnufræði, tómstunda- og félagsmálafræði og vindmyllusmíði.

Daginn eftir verður svo slegið upp heljarinnar vísindaveislu í skólanum sem opin er bæði ungum sem öldnum frá kl. 12-16. Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Sandgerði tekur þátt í veislunni en þar geta gestir skoðað kynjaverjur úr hafdjúpunum, spreytt sig á alls kyns þrautum, tækjum og tólum, kynnt sér japanska tungu, ferðast um himingeiminn í stjörnutjaldinu, kynnst undrum efnafræðinnar, prófað vindmyllusmíði og gert ýmis konar óvæntar uppgötvanir.
Aðgangur að Vísindaveislunni er ókeypis og allir velkomnir.

Háskólalestin hefur heimsótt hátt í 30 staði víða um land frá því að henni var ýtt af stað á aldarafmælisári skólans árið 2011. Lestin brunar nú um landið sjöunda árið í röð en áhöfnin hefur frá upphafi lagt áherslu á lifandi og skemmtilega miðlun vísinda til fólks á öllum aldri.

Háskólalestin verður á Vestfjörðum síðar í maímánuði:
19. og 20. maí - Flateyri
26. og 27. maí – Patreksfjörður

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á Facebook-síðu hennar.
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is