Háskólalestin á ferð um landið í maí

Hin sívinsæla Háskólalest Háskóla Íslands heldur af stað í vikunni í sína árlegu ferð um landið og staðnæmist fyrst í Vík í Mýrdal, en lestin heimsækir alls fjóra áfangastaði í maímánuði. Nemendum í efri bekkjum grunnskólanna á áfangastöðunum fjórum verður boðið upp á fræðandi og skemmtileg námskeið á vegum lestarinnar auk þess sem slegið verður upp Vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna á hverjum stað.
 
Háskólalestin hefur heimsótt hátt í 30 staði víða um land frá því að henni verið ýtt af stað á aldarafmælisári skólans ári 2011. Lestin brunar nú um landið sjöunda árið í röð en áhöfnin hefur frá upphafi lagt áherslu á lifandi og skemmtilega miðlun vísinda til fólks á öllum aldri. 
 
Fyrsti áfangastaður Háskólalestarinnar í ár er Vík í Mýrdal. Föstudaginn 5. maí sækja nemendur 6.-10. bekk í Grunnskóla Mýrdalshrepps og Kirkjubæjarskóla á Síðu valin námskeið í Háskóla unga fólksins en þar glíma þau m.a. við efnafræði, stjörnufræði, vindmyllusmíði, forritun og eðlisfræði. Daginn eftir, laugardaginn 6. maí, verður Mýrdælingum og nærsveitamönnum boðið til veglegrar vísindaveislu í Félagsheimilinu Leikskálum frá kl. 12 til 16. Þar geta gestir spreytt sig á alls kyns þrautum, tækjum og tólum, kynnt sér japanska tungu, ferðast um himingeiminn í stjörnutjaldinu, kynnst undrum efnafræðinnar, prófað vindmyllusmíði og gert ýmiss konar óvæntar uppgötvanir. 
 
Aðgangur að Vísindaveislunni er ókeypis og allir velkomnir.
 
Háskólalestin verður svo á Suðurnesjum og Vestfjörðum síðar í maímánuði en áætlun lestarinnar er svohljóðandi: 
5. og 6. maí – Vík í Mýrdal 
12. og 13. maí - Sandgerði
19. og 20. maí - Flateyri
26. og 27. maí – Patreksfjörður
 
Hægt verður að fylgjast með Háskólalestinni á Facebook-síðu hennar.
 
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is