Japanska

Japönsk menning er um margt sérstök og ímynd landsins er jafnt tengd hátækni og hraða nútímasamfélags sem fornri menningu og hefðum.

Í japönsku í Háskóla unga fólksins eru sérkenni japanskrar menningar skoðuð. Þá eru grunnatriði í japanskri tungu tekin fyrir og nemendur læra ýmsar almennar kveðjur og grunnorðaforða. Þá er sjónum einnig beint að hinu sérstæða ritmáli japönskunnar, hiragana og katagana, sem eru hljóðræn, og svo kanji, sem byggist á myndtáknum. Nemendum gefst einnig tækifæri til að skrifa nokkur tákn á hefðbundna vísu.

Image