Header Paragraph

Háskólalestin brunar á Höfn í Hornafirði 3. maí 2024

Image

Háskólalestin brunar á Höfn í Hornafirði

Vorið er komið og það þýðir Háskólalest Háskóla Íslands brunar  af stað og stöðvast á Höfn í Hornafirði föstudaginn 3. maí.  Haldin verða fjölbreytt og spennandi námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir nemendur í Heppuskóla á Hornafirði en dagskránni lýkur síðdegis með opnu vísindahúsi fyrir allt samfélagið á sama stað.

Opna vísindahúsið verður í Heppuskóla föstudaginn 3. maí kl. 13:50 – 15:00. Þar býðst öllum að kíkja inn í kennslustofur og spjalla við fræðafólkið og kynnast undrum vísindanna með gagnvirkum og lifandi hætti. Verið hjartanlega velkomin – það er alveg ókeypis – ekkert að bóka – bara að mæta!   

Sama dag sitja nemendur í 6.-10.bekk í Heppuskóla námskeið í Háskólalestinni þar sem meðal annars er boðið upp á tækjaforritun, fræðslu um bókmenntir- og loftlagsbreytingar, stjörnufræði, blaða- og fréttamennsku, sjúkraþjálfun, efnafræði og það sem öll eru að tala um þessa dagana, gervigreind. Meðal kennara í lestinni eru Sprengju-Kata og Stjörnu-Sævar sem munu ekki bregðast aðdáendum sínum frekar en fyrri daginn.

Megináhersla Háskólalestarinnar er að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsbyggðina.  Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í verðalunaverkefnunum Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.  

Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert með fjölbreytta fræðslu í farteskinu en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar. 

Það má því með sanni segja að mikil tilhlökkun liggi í loftinu enda verður fjölbreytt fræðsla Háskólalestarinnar fléttuð saman við í framsýna krakka á hverjum stað. Hægt verður að fylgjast með okkur hér og á Facebook síðu lestarinnar

Þess má til gamans geta að Háskólalestin hefur hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís eins og Vísindasmiðjan og Háskóli unga fólksins.

 

Image