Hvammstangi

Fyrsti áfangastaður Háskólalestarinnar árið 2021 var Hvammstangi.

Föstudaginn 14. maí sóttu yfir 80 nemendur 6.-10. bekk í Grunnskóla Húnaþings vestra valin námskeið í:
- bragðvísindum
- fornleifafræði
- líffræði - erfðafræði
- eðlisfræði
- plánetunni Jörð
- vindmyllusmíði
- tómstunda- og félagsmálafræði
- efnafræði

Hver nemandi valdi sér þrjú námskeið til að fara í yfir daginn.

Vegna samkomutakmarkanna í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins var því miður ekki hægt að halda vísindaveislu fyrir almenning að þessu sinni. 

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is