Hátíðarkveðja

Því miður varð að fresta öllum ferðum Háskólalestarinnar árið 2020 sökum COVID-19 heimsfaraldursins.
Hinsvegar bíðum við spennt eftir að lestin komist af stað árið 2021!

Í ferðum lestarinnar býðst landsmönnum í dreifðum byggðum að kynnast vísindum með aðgengilegum hætti og jafnast þannig tækifæri og aðgangur landsmanna að þekkingu og fræðum. Starfsmenn Vísindasmiðju Háskóla Íslands eru kennarar og nemendur HÍ og fá háskólanemar sem þar starfa einstaka þjálfun í vísindamiðlun meðfram sínu námi.

Við þökkum kærlega frábærar mótttökur og samvinnu um allt land síðustu ár, við höfum sannarlega heimsótt frábær skólasamfélög og mikil gleði ríkt af heimamönnum í Vísindaveislunum okkar.

Jólakveðja,
Háskólalestin

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is