Háskólalestin á Hvolsvelli

Háskólalestin hélt á sinn annan áfangastað á verkalýðsdaginn, 1. maí. Nú var haldið á Hvolsvöll þar sem mikil vísindaveisla fór fram. Líkt og í Stykkishólmi var mikið í boði. Sprengjugengið var á sínum stað en það vakti sem fyrr mikla lukku meðal áhorfenda, mikil örtröð var í stjörnuverið, auk þess sem eldorgelið logaði undir söng gospelkórs!


Sem fyrr var japanskan einkar vinsæl. Margir létu ekki nægja að fá sitt eigið nafn ritað á japönsku heldur enduðu með alla fjölskylduna og jafnvel heimilisfangið á þessu framandi tungumáli. Einnig lærðu margir að föndra á japanska vegu. Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur greinilega vakið upp margar spurningar þar sem fjölmargir kynntu sér það sem jarðfræðin hafði upp á að bjóða, meðal annars ösku og grjót úr eldgosinu. Boðið var upp á ýmsa leiki fyrir alla fjölskylduna undir handleiðslu íþróttakennara.


Framlag Vísindavefsins var með hefðbundnu sniði þar sem veggspjöld úr spurningabók Vísindavefsins og Forlagsins um vísindi handa börnum sem kemur út í haust og ber nafnið: Af hverju gjósa fjöll? voru til sýnis, auk vísindadagatalsins. Einhverjir leystu einnig þær þrautir sem í boði voru og hlutu þrír klárir krakkar vísindadagatalið að launum fyrir erfiðið. Þó sumir hafi nú ekki verið lengi að leysa þrautirnar! Þetta voru þau Sæbjörg Eva sem fann út hvað Gunna átti að baka margar kökur, Daníel Anton sem fann fjársjóðinn og Eyþór Máni sem leysti gátu Einsteins.


Fimm erindi voru haldin en þau voru um stærð gossins í Eyjafjallajökli, um skóga og ösku, erindi sem bar nafnið Katla jarðvangur – efling byggðar og samfélags, um komur farfugla til Íslands og að lokum um listina að lífláta lúpínu.

Næstkomandi föstudag, 6. maí, mun svo Háskóli unga fólksins líta við í Hvolsskóla á Hvolsvelli en þar munu nemendur í 5.-10. bekk sækja námskeið í stjörnufræði, dönsku, kynjafræði, nýsköpun, jarðvísindum og stjórnmálafræði.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is