Fornleifafræði
Fornleifafræði getur sagt okkur margt um fortíðina. Með því að skoða það sem liggur undir jörðinni getum við komist að ýmsu um forna búskaparhætti langt aftur í tímann.
Í fornleifafræði í Háskóla unga fólksins kynnast nemendur hvar og hvernig fornleifafræði er stunduð. Við skoðum hvernig fornleifafræðingar vinna í samstarfi við aðra fræðimenn og í tengslum við það lítum við bæði á bein og plöntur, gamla gripi og jarðveg. Þátttakendur fá tækifæri til þess að setja sig í spor fornleifafræðingsins og framkvæma alls kyns greiningar út frá því sem þeir læra.
Image
![](/sites/devhaskolalestin.hi.is/files/styles/squared_small/public/2024-04/fornleifafraedi.jpeg?h=b3660f0d&itok=xHFHSc2r 479w, /sites/devhaskolalestin.hi.is/files/styles/squared_medium/public/2024-04/fornleifafraedi.jpeg?h=b3660f0d&itok=t2bM5wFo 480w, /sites/devhaskolalestin.hi.is/files/styles/squared_large/public/2024-04/fornleifafraedi.jpeg?h=b3660f0d&itok=crgNbZrp 768w)