Eskifjörður

Þriðji og síðasti áfangastaður Háskólalestarinnar árið 2021 var Eskifjörður.

Fimmtudaginn 27.maí sóttu kennarar í Fjarðabyggð kennaranámskeið í microbit-forritun, ljósakassanum og rafrásum.

Föstudaginn 28. maí sóttu síðan yfir 140 nemendur 8.-10. bekk í Eskifjarðarskóla, Grunnskólanum á Reyðarfirði, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla 11 vel valin námskeið í:

- eðlisfræði - ljós og litir
- efnafræði á tilraunastofu
- eldfjallafræði
- fornleifafræði
- forritun og föndur
- líffræði - erfðafræði
- plánetunni Jörð
- réttur barna - samvinna og samningar
- tómstunda- og félagsmálafræði
- umhverfisfræði og loftslagsbreytingar
- vindmyllusmíði

Hver nemandi valdi sér þrjú námskeið til að fara í yfir daginn.

Vegna samkomutakmarkanna í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins var því miður ekki hægt að halda vísindaveislu fyrir almenning að þessu sinni.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is