Borgarnes

Mynd frá Háskólalestin.
 
Borgarnes var annar áfangastaður Háskólalestarinnar árið 2018, en þar stöðvaðist lestin dagana 11. og 12. maí með bæði fjölbreytt vísindanámskeið fyrir grunnskólanemendur og veglega vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna. 
 
Mynd frá Háskólalestin.
 
Föstudaginn 11. maí tóku kennarar Háskólalestarinnar að sér kennslu í Grunnskólanum í Borgarnesi og buðu um hundrað nemendum í 7.-10. bekk upp á námskeið í jafnfjölbreyttum greinum og fornleifafræði, forritun, tómstunda- og félagsmálafræði, efnafræði, leik að hljóðum, japönsku máli og menningu, stjörnufræði og eðlisfræði. Hver nemandi hafði valið sér þrjú námskeið fyrir daginn.  
 
Mynd frá Háskólalestin.
 
Daginn eftir, laugardaginn 12. maí, sló áhöfn Háskólalestarinnar svo upp heljarinnar vísindaveislu í mennta- og menningarmiðstöðinni Hjálmakletti þar sem hægt var að kynna sér undur vísindanna í gegnum leiki, tæki, tól og tilraunir. Vísindaveislan stóð frá kl. 12-16 og var öllum opin, ungum sem öldnum.
 
Hægt er að skoða fleiri myndir af Háskólalestinni á Facebook-síðu hennar.
 
Mynd frá Háskólalestin.
Mynd frá Háskólalestin.
Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is