Háskólalestin heldur nú upp á 10 ára starfsafmæli sitt, en hún var sett á laggirnar á aldarafmælisári Háskóla Íslands árið 2011.
Áhersla starfsmanna lestarinnar er á kynna vísindi á lifandi, skemmtilegan og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki og hefur lestin heimsótt á fjórða tug sveitarfélaga um allt land frá því að hún rúllaði fyrst af stað.
Á vormánuðum 2021 heldur Háskólalestin í sitt árlega ferðalag og heimsækir þrjá áfangastaði, en þeir verða:
Hvammstangi - 13. og 14. maí
Hólmavík - 20. og 21. maí
Eskifjörður - 27. og 28. maí
Lestin hefur ekki farið varhluta af heimsfaraldrinum mikla. Á liðnu vori var hún alfarið kyrrsett en þessu sinni mótast skipulag hennar að stórum hluta af faraldrinum. Sóttvarnir verða að sjálfsögðu í hávegum hafðar, stefnt er að því að áhöfnin fari í COVID-19-sýnatöku fyrir hverja ferð og hluti af hefðbundinni dagskrá lestarinnar liggur niðri. Ekkert hefur þó verið slegið af metnaðarfullum og einkar áhugaverðum námskeiðum sem í boði verða á hverjum áfangastað.
Grunnskólanemum á aldrinum 12 til 16 ára bjóðast þá námskeið um flest allt milli himins og jarðar því fjallað verður um plánetur og eldfjöll, fornleifar og nýsköpun, félagsmál og samskipti, töfra ljóss og lita, erfðaefni og loftslagsbreytingar, orkuskipti, vindmyllur, efnafræði, forritun og óvenju krassandi næringarfræði.
Nemendur munu meðal annars setja sig í spor Nóbelsverðlaunahafa og kynnast leyndardómum DNA – lyklinum að lífinu, komast að því hvað rannsóknarlögregla og fornleifafræðingur eiga sameiginlegt, læra að búa til gerviblóð fyrir næstu Hrekkjarvöku, kynnast innviðum eldjalla og rafgreiningu vatns, leita lausna við áskorunum samtímans, velta fyrir sér Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og fleira.
Sú nýjung verður í Háskólalestinni að þessu sinni að sérstakar kennarasmiðjur verða í boði auk námskeiðanna fyrir unga fólkið. Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni. Stefnt er á að gera þessa þjónustu að föstum lið í Háskólalestinni.
Það má með sanni segja að Háskólalestin fagni 10 ára afmæli sínu eins og vera ber, með fjölbreyttri fræðslu í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar.
Nánar má lesa um hverja heimsókn fyrir sig með því að smella á hlekkina hér til hliðar.