Fjör og fræði í Háskólalestinni 2025

Árið 2025 leggur Háskólalestin í spennandi ferðalag og heimsækir Vopnafjörð á Norðausturlandi og Patreksfjörð á Vestfjörðum þegar vorið gengur í garð. Þegar haustið nálgast, verður stefnan tekin á Suðurlandið.

Háskólalestin sameinar fróðleik og fjör á einstakan hátt þar sem vísindin lifna við, forvitni er vakin og ævintýrin bíða þeirra sem taka þátt.

Image

Háskólalestin

Háskólalestin býður upp á kennslu í grunnskólum staðanna og spennandi og lifandi Opið vísindahús með undrum vísindanna fyrir allt heimafólk. Áhöfn Háskólalestarinnar skipar fræðafólk og framhaldsnemar við Háskóla Íslands, öll með mikla reynslu í miðlun og kennslu. Jafnframt hafa vísindamenn frá rannsóknasetrum HÍ lagt sitt af mörkum til fræðslunnar.

Í boði eru fjölbreytt námskeið og smiðjur fyrir grunnskólanemendur, sem og kennarasmiðjur fyrir kennara.

Markmið Háskólalestarinnar er að kynna vísindi á lifandi hátt, styðja við grunnskólana og efla tengsl Háskóla Íslands við landsbyggðina.

Háskólalestin hlaut Vísindamiðlunarverðlaun Rannís árið 2012.

Image

Undur vísindanna í opnu húsi

Háskólalestin býður öllum á Opið vísindahús til að sjá afrakstur krakkanna úr lestinni auk þessa að gefa fólki færi á að kynnast vísindafólkinu betur og sjá undrin með eigin augum. 

Á Opna húsinu er hægt að spjalla við fræðafólkið um allt milli himins og jarðar, eða því sem næst.

Það er alveg ókeypis á Opna húsið og öll eru hjartanlega velkomin!

Image